Posts by author
Ritstjórn Mannlífs
Hulda með riffil hlaðinn af ótta við bjarndýr: ,,Ég hefði aldrei hitt en það er sama!“ FYRRI HLUTI
Árið 1951 flutti Hulda Eggertsdóttir sextán ára gömul með manni sínum Þorkeli Sigmundssyni í Hornvík á Ströndum. Árið 1947 höfðu síðustu ábúendurnir yfirgefið hreppinn og því voru þau ein um búskap þegar þau bar að garði. Næsta byggða ból var Hornbjargsviti við Látravík. Aðdragandinn var sá að Hulda hafði farið sem ráðskona með svokölluðum eggjaköllum…
Skotinn af smástelpu á Svalbarðasvæðinu: ,,Hún var einn og fimmtíu og 46 kíló“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er Húsvíkingurinn Eiríkur Sigurðsson, skipstjóri á Reval Viking. Eiríkur var skipstjóri á Hágangi þegar norsk freigáta skaut á skipið þegar það var við veiðar á Svalbarðasvæðinu. Skipið var skráð í Mið-Ameríkuríkinu Belís sem á hlut að Svalbarðasáttmálanum. Norðmenn fara með stjórn á Svalbarðasvæðinu og vildu ekki sjá þessi erlendu skip…
Sjóarinn – Hrefnu Konni: ,,Mig grunaði nú ekki að það yrði síðasti dansinn“ FYRRI HLUTI
Í þessum fyrri hluta viðtals Reynis Traustasonar við Konráð Eggertsson á Ísafirði, sem betur er þekktur sem Hrefnu-Konni, segir Konni frá því þegar hann fluttist níu ára gamall með systur sinni og eiginmanni hennar til Hornvíkur þar sem þau síðarnefndu hugðust vera með búskap, en þá hafði byggð lagst af á svæðinu. Hann segir sögur…
Sjóarinn KK
„Æðruleysið er trilla sem er um eitt og hálft tonn og sjö metrar og með 20 hestafla búkkvél; lítil vél sem fer ekkert hratt. Hún fer svona sex mílur þægilega. Topphraðinn sex mílur. Það er svona 10 – 12 kílómetra hraði,“ segir Kristján Kristjánsson tónlistarmaður, betur þekktur sem KK, í viðtali við Reyni Traustason. KK…
Sjóarinn Bragi Ólafsson: Skipstjórinn sem varð fasteignakóngur
Bragi Ólafsson skipstjóri hefur stjórnað allt frá smábátum og upp í stærstu togara. Hann segir sögu sína í Sjóaranum. Eftir langan og farsælan feril fór hann í land og gerðist fasteigakóngur. Næstum áttræður er hann í fullu fjöri og vinnur við byggja hús og selja.
Fyrri hluti: Guðmundur M. Kristjánsson: Vill njóta lífsins í stað þess að deyja frá eftirlaununum
Ævintýramaðurinn Guðmundur Magnús Kristjánsson er á krossgötum eftir tveggja áratuga starf sem hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hann ætlar að njóta lífsins á eftirlaunum í stað þess að vinna lengur og taka áhættuna af því að eiga engin eftirlaunaár. Hann hefur misst of marga félaga til þess að taka áhættuna. Hafnarstjórinn er að leggja upp í þá gullnu…
Sjóarinn: Hann var mögulega í sjónum – ,,Var ég orðin ekkja?“
Sjómannsfrúin og sjómannsdóttirin Hrefna Reynisdóttir upplifði óvissuna um hvort eiginmaður hennar væri lífs eða liðinn þegar hún las fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni þess efnis að maður á skipi manns hennar hefði fallið útbyrðis. „Já, hann var mögulega í sjónum. Já, Jesús minn almáttugur. Ég gleymi því ekki hvað ég var hrædd. Þá vildi bara svona heppilega…
Hlöðver Haraldsson á Hólmadrangi og hjátrúin: Skipaði kokknum að henda sviðahausunum í sjóinn
Hlöðver Haraldsson er oft kenndur við Hólmadrang þar sem hann var skipstjóri um árabil. Hólmadrangur var annar af fyrstu frystitogurunum sem Íslendingar eignuðust. Hann er nýjasti gestur Reynis Traustasonar í hlaðvarpinu Sjóarinn. Hér má lesa brot úr viðtalinu eða hlusta á það í heild sinni. Svo varð Hlöðver sjómaður að atvinnu. Frændur hans áttu bát…
Sjóarinn: Aflaklóin og kvótaandstæðingurinn Grétar Mar: Mokveiði á Brjálaða hryggnum
Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi skipstjóri, á að baki fortíð sem aflakló, leiðtogi sjómanna og alþingismaður. Í dag er hann kominn í land og starfar sem lifrarspekúlant. Það þýðir að hann safnar saman lifur víða um land og sendir á Hornarfjörð þar sem feitmetið er unnið í neytendapakkningar. Grétar Mar var farsæll skipstjóri um áratugaskeið. Hann…
Sjóarinn – Elías Svavar Kristinsson: „Já, það var svolítið slegist. Mikið drukkið“
Í Sjóaranum ræðir Reynir Traustason við Elías Svavar Kristinsson, stýrimann með meiru. Elías Svavar ræðir um skipsskaða, síldveiðar, fyirferðarmikla Íslendinga á Hjaltlandi og margt fleira. Aðspurður hvort hann hafi lent í einhverjum ævintýrum á sjónum, svarar Elías: „Já, fjölda mörgum ævintýrum. Ég var í Norðursjónum og það var mikil gleði þega við komumst í land…