VefTV Mannlífs VefTV Mannlífs
  • Sjóarinn
  • Mannlífið
  • Skuggabörn
  • Sakamálið
  • Innskráning
  • Kaupa áskrift
Vinsælir þættir
  • 1
    Guð gaf mér þrjár konur – Jóhannes Gíslason segir frá lífinu í Skáleyjum
    • 31. desember, 2024
  • 2
    Sigríður Rannveig – Seinni hluti
    • 25. desember, 2024
  • 3
    Sigríður Rannveig – Fyrri hluti
    • 24. desember, 2024
  • 4
    Júníus Meyvant
    • 8. nóvember, 2024
  • 5
    Sanna
    • 16. ágúst, 2024
VefTV Mannlífs VefTV Mannlífs
  • Kaupa áskrift
  • Innskráning
VefTV Mannlífs VefTV Mannlífs
  • Sjóarinn
  • Mannlífið
  • Skuggabörn
  • Sakamálið
  • Innskráning
  • Kaupa áskrift
Home Færslusíða Kíkt í Heimsókn – 2. Þáttur: Endurgerði upphandlegg á 11 ára barni eftir beinkrabba
  • Opið efni

Kíkt í Heimsókn – 2. Þáttur: Endurgerði upphandlegg á 11 ára barni eftir beinkrabba

  • Ritstjórn Mannlífs
  • 1. apríl, 2024

Til að fá aðgang að þessari færslu þarftu að kaupa áskrift eða skrá þig inn hér.

Total
0
Shares
0
0
0

Í öðrum þætti Kíkt í Heimsókn lítur Valdís Samúels í heimsókn til Andra Más, lýtalæknis, á Læknastofum Reykjavíkur. Andri Már nam í Svíþjóð hvar hann svo starfaði og fór meðal annars fyrir teymi sem annaðist smásjárskurðlækningar en slíkar aðgerðir teljast frekar til uppbyggjandi lýtaaðgerða en fegrunaraðgerða.

Hann segir frá því að hérlendis hafi hann ásamt samstarfsfélögum sínum eitt sinn þurft að endurgera upphandlegg á litla stúlku sem hafði greinst með beinkrabbamein. Til að fjarlægja krabbameinið hafi þurft að fjarlægja stóran hluta af beininu og um helming vöðvanna en teyminu tókst að endurgera beinið í upphandleggnum og axlarliðinn með því að nýta sperrilegginn úr öðrum fætinum.

Andri segist ekki geta gert upp á milli fegrunaraðgerða og uppbyggjandi lýtalækninga þó hann sé vissulega að mestu leyti í fegrunaraðgerðum í dag, eftir að hann flutti aftur til Íslands. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta um að hjálpa fólki hvort sem um ræðir að hjálpa skjólstæðingi sem af einhverjum sökum líður illa vegna þess sem gæti talist til lýtis eða viðgerðir vegna meðfæddra galla eða i kjölfar sjúkdóma, slysa o.þ.h.

Áður en Andri tók ákvörðun um að nema læknisfræði hóf hann sálfræðinám. Honum fannst það ekki henta sér en í lok þáttarins bauð hann Valdísi á bekkinn og rifjaði upp gamla takta. Hvort hann hefði orðið góður sálfræðingur ef lýtalækningarnar hefðu ekki orðið fyrir valinu verður hver og einn að dæma um fyrir sig.

Total
0
Shares
Share 0
Tweet 0
Pin it 0
Efnisorð
  • Kíkt í Heimsókn
Previous Article
  • Sjóarinn

Saga Sigga Þórðar – Stýrimaðurinn sem sló heimsmet í sölu á Ginseng

  • Ritstjórn Mannlífs
  • 27. mars, 2024
Lesa meira
Next Article
  • Sakamálið

Sakamálið – 19. þáttur: Vákvenndið Aileen Wuornos

  • Ritstjórn Mannlífs
  • 7. apríl, 2024
Lesa meira
Horfðu á fleira
Lesa meira

Guð gaf mér þrjár konur – Jóhannes Gíslason segir frá lífinu í Skáleyjum

Lesa meira

Sigríður Rannveig – Seinni hluti

Lesa meira

Sigríður Rannveig – Fyrri hluti

Lesa meira

Júníus Meyvant

Lesa meira

Sanna

Lesa meira

Forsetaviðtal – Norðurfjörður

VefTV Mannlífs VefTV Mannlífs
  • Sjóarinn
  • Mannlífið
  • Skuggabörn
  • Sakamálið
  • Innskráning
  • Kaupa áskrift
Sólartún ehf 

Ármúla 15,108 Reykjavík
Sími: 820-5200 Netfang: rt@mannlif.is; gudrun@mannlif.is
VSK nr: 133775
Kt: 610807-0890

Kaupskilmálar og Persónuverndarstefna 

Innskráning
Kaupa áskrift
Gleymt lykilorð?

Input your search keywords and press Enter.