Posts by author
Ritstjórn Mannlífs
Illugi Jens ósáttur við ráðgjöfina: „Að bæta við einu prósenti er alveg galið“
Sjóarinn lagði land undir fót og hitti skipstjórann, útgerðarmanninn og rafvirkjann Iluga Jens Jónasson á heimili hans á Grundarfirði. Spurður út í ráðgjöfina kallar hann þá einnar prósentu aukningu á aflaheimildum galna og segist telja að fimm prósent aukning hefði ekki verið óeðlileg núna í ár. Hann segir frá því að undanfarin ár hafi þeir…
Páll skipstjóri segir söguna á bak við byrlun, símaþjófnað og hjartastopp: „Ég er skæruliði“
Nýjasti gestur Mannlífsins er maður sem gengið hefur í gegnum mikinn ólgusjó. Það er skipstjórinn Páll Steingrímsson sem segir sögu af byrlun, símaþjófnaði og átökum. Páll hefur verið mikið í fjölmiðlum síðustu árin en hann er skipstjóri hjá Samherja og komst í fréttirnar þegar hann var sakaður um að vera „skæruliði“ Samherja. Þá steig hann…
Runólfur skipstjóri: Dreymdi hægðir fyrir fiski en eitt sinn vaknaði hann um borð í djúpum skít
Framkvæmdastjórinn, fyrrum skipstjórinn og Grundfirðingurinn Runólfur Guðmundsson segir það um skipstjórnartíð sína að hann hafi verið hjátrúarfullur en hann hefur það fyrir satt að ef hann dreymdi miður geðslega drauma um mannaskít þá veiddi hann vel. Þó hefur það sannast að þetta á bara við í draumum og að draumar verða oft að veruleika því…
Hafsteinn var skipstjóri þegar þrír fórust: „Nú verður hver og einn að hugsa um sjálfan sig“
Hafnarstjórinn og fyrrum skipstjórinm Hafsteinn Garðarsson var skipstjóri þegar Krossnesið sökk. Þrír menn létust í háskanum en það markaði Hafstein fyrir lífstíð. Hann var viðmælandi Reynis Traustasonar í nýjasta þætti Sjórans en Reynir var stýrimaður á Sléttanesinu sem var fyrsta skip á vettvang. Háskann bar skjótt að og þegar Hafsteinn komst upp á dekk fór…
Ólafur Haukur Símonarson: „Það mátti lítið hreyfa vind áður en ég byrjaði að kúgast“
Fyrrum sjóarinn, tónlistarmaðurinn, rithöfundurinn og leikskáldið Ólafur Haukur Símonarson er gestur Sjóarans að þessu sinni. Ólafur Haukur var til sjós með föður sínum, Símoni Guðjónssyni, til sjós á unglingsárum en líkt og pabi hans var hann alltaf sjóveikur. „Pabbi var alltaf sjóveikur en var samt í fimmtíu ár til sjós. Afi minn var sömuleiðis í…
Kristján keypti bát á versta tíma: „Ef það er góðæri í borginni er allt í steik í sjávarútveginum“
Útgerðarmaðurinn og kvikmyndaframleiðandinn Kristján Torfi Einarsson keypti sér bát og ætlaði í útgerð rétt fyrir upphaf lengsta góðæris landsins. Hann hafði fengið upplýsingar um að þá væri tíminn til að kaupa kvóta en það fór ekki eins og hann ætlaði. „Ég kaupi bátinn á versta mögulega tíma. Ég kaupi hann og fyrstu fréttirnar eru að…
Kristján var um borð þegar Æsan sökk: „Hangi sona á rekkverkinu í smá tíma áður en ég fer í hafið“
Kristján Torfi Einarsson var um borð þegar Æsan fórst út af Arnarfirði árið 1996, þá aðeins 18 ára gamall. Skipið hafði verið við veiðar á kúfskel og voru á fullu stími til hafnar þegar að svo virðist sem að barki, sem var hluti af veiðarfærunum, sem dreginn var á eftir bátnum hafi fests í botni…
Sjóarinn: Kjartan Hauksson reri í kringum landið – Háski þegar bátnum hvolfdi í briminu við Rekavík
Kafarinn Kjartan Hauksson reri fyrstur manna einsamall hringinn í kringum Ísland í árabáti árið 2003. Hann segir frá því að þegar hann reri út af Rakavík á Ströndum hafi hann lent í stífum norðanvindi sem gerði róðurinn þungan og hamlaði hönum för. Hann ákvað því að varpa út akkeri til að hvíla sig fyrir átökin…
Tolli Morthens entist ekki lengi í fyrsta túrnum: „Ég var svo sjóveikur, maður, alveg ferlega“
Gestur Sjóarans að þessu sinni er myndlistamaðurinn Tolli Morthens. Fyrstu kynni Tolla af Atlantshafinu var þegar hann var messagutti á Gullfossi árið 1971. Sú upplifun veitti honum kjarkinn í það að gerast sjóari á fiskibátum því hann hlyti að vera vanur en annað kom á daginn. ,,Ég byrja á humarbát frá Stokkseyri, það varði eina…